Sjónin þín er einstök
Vönduð vinnubrögð, heiðarleiki og fagmennska eru lykilþættir í daglegu starfi Sjónlínunnar. Viðskiptavinir okkar og þeirra óskir og þarfir eru miðpunkturinn í allri ákvarðanatöku.Okkar gæði –
Gæðastefna felst í þeim viðmiðunarreglum sem stuðst er við varðandi allar ákvarðanir er snerta gæði í rekstrinum eða þjónustunni. Með einföldum hætti má segja að gæðastjórnun sé fyrst og fremst skipuleg og öguð vinnubrögð til að ná árangri og tryggja gæði.